22.10.2009 | 21:53
Vil hafa það upprunalegt.
Gleymum ekki að sumt af þessu niðurhali er greitt fyrir löglega svo rétthafar fá sitt, til dæmis með Itunes og Tónlist.is en mikið af því er líka tekið ólöglega. Væri gott ef yrði gerð könnun á því hve hátt hlutfall er löglegt og hve mikið stolið og það síðan gert áberandi í fjölmiðlum. Sjálfur kýs ég að kaupa diskana, vegna þess að á þeim er lesmál með upplýsingum sem þægilegt er að hafa í höndunum meðan hlustað er. Ég hef líka taugar til listamannanna og vil að þeir hafi nægar tekjur til að halda áfram sinni sköpun. Hillur fullar af geisladiskum í snyrtilegri röð skapa líka menningarlega tilfinningu, eins og bókahillur hjá bókaáhugafólki. Versti gallinn við diskana er hvað þeir eru dýrir og er það án efa helsta skýringin á því að salan á þeim hefur minnkað.
|
Niðurhal af netinu hefur áhrif |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Húnbogi Valsson
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 10
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 84
- Frá upphafi: 51652
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


asdisomar
gattin
skordalsbrynja
dunni
jaherna
fjarki
killjoker
lucas
hlynurh
holmdish
jakobk
larahanna
meistarinn
offari
sifjan
lehamzdr
metal








Athugasemdir
Ég er nú eins og þú, vil hafa þetta upprunalegt, lítið fyrir að hala niður efni.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.10.2009 kl. 13:35
Blessaður listsnillingur!
Verst þú skulir ekki vera í bænum, kumpáni þinn og kennari, Bjöggi Gísla á Græna Hattinum í kvöld.
En um þessi mál í mjög víðum skilningi hef ég skrifað um líklega allt frá árinu 1994. Þá og raunar fyrr vorum emnn í Ammrikkunni byrjaðir að rembast við að slá á hve ólögleg fjölföldun og sjóræningjaútgáfur með meiru, hefðu áhrif á vöxt og viðgang tónlistariðnaðarins. 5% var tala sem ég man eftir einvherja úttekt, en sannleikurinn er nú sá Húnbogi góður að hvorki fyrr né nú er nokkur leið að finna slíkt út með óyggjandi hætti og hef ég margoft fært fyrir því rök. Ein þau stærstu eru, að þú getur aldrei sett samasemmerki milli t.d. niðurhals 1000 sinnum á Woodoo Chile laginu með Hendrix eða t.d. Surfing With The Alien plötunni með SAtriani, svo eitthvað sé nefnt og að þar með séu 1000 eintök töpuð í sölu!Það er ekki hægt! Svo gengur það ekki núna eftir öll þau ár sem niðurhalk hefur verið mögulegt, að segja nú að það hafi áhrif og þá til hins verra þegar nánast allan tíman á undan sem ég man, hafi þvert á móti verið stöðug söluaukning á íslenskri tónlist. En verði hægt að finna það út nú, að niðurhalið hafi áhrif til hins verra, þá hlýtur það bara að hafa haft góð áhrif á undan?!
Það eru fjölmargir fletir á þessu félagi og ég gæti haldið hérna lengi áfram!
Magnús Geir Guðmundsson, 24.10.2009 kl. 20:57
Hér að ofan var ég nú að reifa pælingar um óæöglega miðurhalið fyrst og síðast, en við nánari lestur á fréttinni sé ég að hún fjallar eiginlega bara um meintan samdrátt á formi, þ.e. tónlist í plastumbúðum með bæklingi og þú Húnbogi varst nú að spjalla um. En fréttin og þessi samanburður er hins vegar alveg arfavitlaus og ég er alveg steinhissa á henni.
Magnús Geir Guðmundsson, 24.10.2009 kl. 21:37
Ég var voðalega mikið fyrir svona ekta músik. En svo brann húsið mitt en diskarnir ekki. Ég þurfti hinsvegar að henda hulstrunum og því á ég núna svona sirka 20 cm háan stafla af geisladiskum en hulstrin fylltu þrjá fulla ruslapoka. Þetta spara tölvert pláss og en þá fórnar maður öllum orginalsjarmanum við að hlusta á diskana :(
Offari, 25.10.2009 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.