Skynsemin ræður

Það er ánægjulegt að hægt sé að skrifa undir nýja kjarasamninga án óláta og verkfalla sem eru okkar samfélagi alltof dýr. Þetta er raunar fagnaðarefni. Ég hef séð fólk fordæma verkalýðsforystuna fyrir að sýna ekki meiri frekju en Gylfi Arnbjörnsson þorir að axla ábyrgð þó að það geti kostað hann óvægna gagnrýni. Málið er að það er kreppa og á krepputíma getur enginn leyft sér að heimta miklar kjarabætur, í kreppu verða allir að sameinast um að bera byrðarnar. Einhverjir, sem munu gagnrýna þessi skrif mín, segja að þessir kjarasamningar séu allt of lélegir fyrir vinnandi stéttir, en við höfum verið að missa mikið af atvinnulífinu til fjarlægra landa vegna þess að þar er vinnuaflið bæði ódýrara og betra, við verðum bara að sætta okkur við það að sá sem býður lélega vöru getur ekki heimtað margfallt hærra verð en sá sem býður góða vöru! Vinnuframlag er bara söluvara og verð og gæði fara saman. Flestir íslendingar hafa vanið sig á allt of dýran lífstíl og verða bara að taka því. Flestir vesturlandabúar gætu öfundað íslendinga að búa svona nálægt vinnustaðnum. Í flestum löndum, eða nánast allstaðar utan Íslands er það bæði dýrt og tímafrekt að fara til og frá vinnu en á Íslandi, þar sem vegalengdir eru engar, þá gæti fólk farið gangandi og ókeypis í vinnuna og það er forskot í verðsamkleppni og ætti að vera íslendingum mjög í hag, sem eru og mikil forréttindi en því miður, ég hef búið á Húsavík, Akureyri, Ísafirði, Blönduósi, Reyðarfirði, Breiðdalsvík....... og á þessum stöðum þekkist það varla að fólk fari fótgangandi á milli húsa þó vegalengdir séu engar. Þessi bílaakstur kostar mörg hundruð þúsund á ári og sama fólkið vælir svo yfir að ná ekki endum saman. Er hægt að ná lengra í leti, aumingjaskap og heimsku (ef enhverjum blöskrar þessi stóryrði, þá endilega nefnið verri dæmi!). Fólk sem lifir svona og virðist ekki vita hvað hagsýni og nýtni er, verður bara að sætta sig við það að verða undir í samkeppni við skynsamara fólk og að launin þeirra standi þá ekki undir kostnaði, að launin þeirra standa ekki undir allt of dýrum lífsstíl og vinnuframlagið þeirra er ekki samkeppnisfært við vinnuframlag í löndum þar sem fólk er ekki haldið hræðslu við að hreyfa sig (sem er landlægt á Íslandi) og ekki er litið á bílinn sem líkamshluta. Verð á vinnu er bara eins og verð á vöru, ef það er of hátt, minnkar áhugi kaupenda. Þess vegna verður verðið/launin að vera málamiðlun milli seljanda og kaupanda og það er það sem er vandamálið við þá sem sjá ekki samhengið milli kostnaðar- innkomu- aðlögunar að aðstæðum og það er vandamálið með íslendinga núna.
mbl.is Hefði sett allt upp í loft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Húnbogi Valsson

Höfundur

Húnbogi Valsson
Húnbogi Valsson
Er Þingeyingur, ljóska og er stoltur af því

Tónlistarspilari

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...dscn4246
  • ...dscn3023
  • ...prof_909277
  • ...dscn4256
  • ...dscn4085

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 84
  • Frá upphafi: 51652

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband